Noregur
Fólksfjöldi: 5,5 milljónir
Tungumál: Norska
Gjaldmiðill: Norsk króna
Höfuðborg: Osló
Noregur er land, á Skandinavíuskaganum í Norður-Evrópu, sem hefur landamæri að Svíþjóð, Finnlandi og Rússlandi og er eitt Norðurlandanna. Strönd Noregs er mjög vogskorin og með ótal fjörðum sem ísaldarjökullinn mótaði. Sognfjörður er stærsti fjörðurinn og inn af honum ganga margir smáfirðir. Einnig eru margar eyjar undan ströndum Noregs, þ.m.t. eyjaklasinn Lófótur sem er rómaður fyrir náttúrufegurð. Eyjarnar Jan Mayen og Svalbarði heyra undir Noreg. Tungumál Norðmanna er norska (sem hefur tvö opinber ritunarform, bókmál og nýnorsku), ásamt samískum tungumálum. Norskt talmál einkennist af miklum mállýskumun. Notkun mállýsku í venjulegu talmáli er jafn algeng hjá þeim sem nota bókmál eins og þeim sem nota nýnorsku sem ritmál. Ísland og Noregur eiga sér langa sögu, en Ísland var fyrst numið af norskum og gelískum (skoskum og írskum) landnemum undir lok níundu og tíundu aldar. Norski víkingurinn Hrafna-Flóki er sagður hafa gefið Íslandi núverandi nafn. Fjölmargir Íslendingar hafa lagt leið sína til Noregs hvort sem er til náms eða vinnu.
Að sækja um
Sótt er um í grunnnám í norsku háskólana í gegnum síðuna Samordna Opptak. Aðalumsóknarfrestur er 15. apríl. Frestur fyrir þá sem sækja um á grundvelli annars en stúdentsprófs, t.d. aldurs og fyrri starfa og eru eldri en 25 ára er 1. mars. Sjá frekari upplýsingar á Samordnaopptak. Í flestum tilfellum er gerð krafa um studiekompetanse, sem er oftast stúdentspróf. Hér er hægt að sjá hvernig íslenska stúdentsprófið reiknast yfir á norska kerfið. Í listnám er umsóknarfresturinn oftast fyrr, 1. apríl. Sótt er um beint til skóla. Yfirleitt er skólaárið frá byrjun september og fram í maí/júní og skiptist í tvö misseri. Hérna er hægt að skoða háskóla/nám sem ennþá er hægt að komast inn í eftir júlí ár hvert.
Námsgráður
Háskólanám er eins uppbyggt og á Íslandi, bakkalárnám, meistaranám og doktorsnám.
Skólagjöld
Skólagjöld eru ekki innheimt í ríkisháskólana í Noregi, nemendur þurfa eingöngu að greiða skráningargjöld sem eru á bilinu 300-600 NOK. Í einkaskóla þarf að borga skólagjöld.
Leit að námi
Þegar leitað er að námi er best að hefja leitina á sértilgerðum námsleitarvélum. Hér á eftir má sjá lista yfir nokkrar slíkar:
- Utdanning.no: Mjög fín leitarvél sem keyrð er af norska ríkinu
- Studentum.no: Leitarvél um allt mögulegt nám eftir skyldunám.
- Velgriktig.no: ágæt leitarsíða um nám í Noregi, einkanlega á sviði raunreina, náttúruvísinda, tæknigreina, verkfræði og þess háttar.
- Opplæring og utdanning i Norge: nám á öllum skólastigum.
- Studyinnorway.no.
Nám á ensku
Framboð á námi kennt á ensku er orðið mjög mikið í Noregi. Hér er leitarvél með um 200 námsleiðir á ensku.
Menntasjóður
Að flytja til
Húsnæði
Allir nemendur við háskólana í Osló geta sótt um húsnæði hjá Studentsamskipnaden í Osló (SiO). Hér er um að ræða einstaklingsherbergi með baði og aðgangi að eldhúsi með nokkrum öðrum, eins herbergis íbúðir, sem ætlaðar eru barnlausum pörum og litlar tveggja herbergja íbúðir fyrir barnafólk. Sótt er um rafrænt á vef SiO. Ekki er ráðlegt að hafna íbúð sem manni er úthlutað því það getur frestað nýrri úthlutun töluvert. Oft er betra að taka því sem fæst og sækja síðar um flutning á milli staða. Nemendur í öðrum skólum í Osló geta sótt um hjá Yrkeskolens Hybelhus (Anker Studentboliger). Ef áætlað er að fara út að hausti er best að senda inn umsókn í maí/júní þar sem langir biðlistar myndast. Annars er tekið við umsóknum allan ársins hring. Svipað fyrirkomulag er í öðrum borgum Noregs og ættu námsmenn að senda inn umsóknir með góðum fyrirvara.
Sendiráð
Krækja á íslenska sendiráðið í Osló og norska sendiráðið í Reykjavík.